EU FOODPACT verkefnið hófst formlega með fyrsta alþjóðlega verkefnafundi samstarfsaðilanna (Transnational Project Meeting - TPM) í Reus í Spáni dagana 13.-14. maí 2026. Fundurinn var skipulagður af Viðskiptaráði Reus (Reus Chamber of Commerce) og EDENSOL, og leiddi saman samstarfsaðila víðs vegar að úr Evrópu. Áhersla fundarins var á stefnumörkun og sameiginlega framtíðarsýn um sjálfbærniferla í matvælaframleiðslu samstarfslandanna.
EU FOODPACT verkefnið varð til sem svar við einni af vaxandi áskorunum í Evrópu, hvernig hægt er að styðja við lítil og örfyrirtæki í landbúnaðar- og matvælageiranum í vegferð þeirra að aðlögun að grænum og stafrænum umbreytingum. Þrátt fyrir að evrópsk stefnur leggi sífellt meiri áherslu á sjálfbærni, nýsköpun og umhverfisábyrgð standa mörg fyrirtæki í virðiskeðju matvælaframleiðslu enn frammi fyrir hindrunum sem tengjast færni, ráðgjöf, fjármagni og aðgengi að markvissum stuðningi. Markmið verkefnisins er að brúa þetta bil með þróun hagkvæmra verkfæra, fræðsluforrða og samstarfsvettvanga sem styðja við ör-, lítil og meðalstór fyrirtæki í matvælageiranum.
Á fundinum í Reus fóru samstarfsaðilar yfir langtímasýn verkefnisins og ræddu hvernig FOODPACT geti stutt við fyrirtæki, starfsfólk, menntastofnanir og stefnumótandi aðila í næstu þremur árum. Sérstaк áhersla var lögð á þróun greiningar- og kortlagningarverkefna sem munu hjálpa til við að meta raunverulegar þarfir, áskoranir og stöðu sjálfbærni meðal hagsmunaaðila í matvælagreinum í samstarfslöndunum.
Mikilvægur hluti umræðunnar sneri að þróun svokallað Community Food Education Hubs eða samfélagslegra fræðlusetra, sem eru eitt af lykilafurðum verkefnisins. Markmið þessara setra verður að skapa svæðisbundin samstarfsnet þar sem fyrirtæki, viðskiptaráð, fræðuaðilar, vottunaaðilar og hagaðilar geta unnið saman, miðlað þekkingu og reynslu og stutt við stöðuga færniuppbyggingu og þróun innan matvælageirans.
Auk stefnumótunar- og verkefnavinnu, lögðu samstarfsaðilar á fundinum áherslu á tengslamyndun meðal þeirra aðila sem koma að utanumhaldi verkefnisins og samræður sem gaf hópnum tækifæri til að leggja grunn að árangursríku samstarfi í verkefnatímanum. Utan fundartíma gafst hópnum þannig tækifæri í að byggja upp traust, skiptast í sjónarmiðum og efla sameiginlega skuldbindingu gagnvart markmiðum EU FOODPACT.
Samstarfshópur verkefnisins leiðir saman fjölbreyttar stofnanir og samtök með sérþekkingu í sjálfbærni, fullorðinsfræðslu, stuðning við fyrirtæki, nýsköpun, miðlun og stefnumörkun. Með þessari þverfaglegu samvinnu stefnir EU FOODPACT að því að stuðla að seiglu, aukinni færni og seiglu innan evrópska matvæla- og framleiðslugreina.
Fundinum lauk með sameiginlegri sýn hópsins á framtíð verkefnisins, auk skýrs vegvísis fyrir næstu skref. Í næstu mánuðum mun EU FOODPACT hefja vinnu við fyrstu verkþætti verkefnisins, tengjast hagsmunaaðilum og þróa verkfæri og aðferðir sem styðja við sjálfbæra umbreytingu í landbúnaðar- og matvælagreinum í samstarfslöndunum.
Fylgist með fyrir frekari fréttum um framþróun verkefnisins.